top of page
Image by Kristopher Allison

Viltu miðla þekkingunni til framtíðarflugmanna? Við leitum að öflugum flugkennurum!

 

Ertu með ástríðu fyrir flugi og brennur fyrir því að hjálpa öðrum að ná markmiðum sínum? Vegna aukinna umsvifa óskum við hjá Flugskóla Íslands í samstarfi við samstarfsskóla okkar, Sevenair Academy í Portúgal, eftir umsóknum frá metnaðarfullum og drífandi flugkennurum til að slást í okkar frábæra kennarahóp fyrir verklega flugkennslu.

 

Einnig leitum að að áhugasömum flugkennurum sem hafa áhuga á að sinna flugkennslu hjá einum stærsta flugskóla í Evrópu, samstarfsaðila okkar Sevenair Academy í Portúgal.

 

Öll verkleg kennsla á flugvélar (FI/CRI/IRI) fer fram hjá samstarfsaðila okkar Sevenair Academy og verða allar slíkar umsóknir sendar áfram til Sevenair Acadmey til frekari skoðunar. Gert er ráð fyrir að áhugasamir kennarar séu tilbúnir að flytja aðsetur til Portúgal. Möguleiki er að starfa eftir mismunandi fyrirkomulagi sem mynda bjóða áhugasömum flugkennurum á að sinna kennslustörfum í ákveðinn tíma í Portúgal og taka svo samliggjandi frí (commuting fyrirkomulag).

 

Verklegir flugkennarar (FI/CRI/IRI)

Við leitum að jákvæðum og faglegum einstaklingum sem hafa gaman af því að vinna með nemendum í krefjandi en skemmtilegu umhverfi.

  • Kröfur: Gild flugkennsluréttindi, rík öryggisvitund og framúrskarandi samskiptafærni.

  • Kostur: Reynsla af flugkennslu er mikill kostur, sér í lagi tveggjahreyfla- og blindflugskennslu, en við hvetjum einnig nýútskrifaða kennara til að sækja um.

 

Flugkennarar ráða sig beint til Sevenair Academy. Vinnufyrirkomulag og kjör fara eftir kjarasamningum Sevenair Academy við sína flugkennara.

Einnig tökum við alltaf á móti umsóknum frá áhugasömum flugmönnum í bóklega atvinnuflugmannskennslu og verklega flughermikennslu fyrir MCC, APS MCC og tegundaráritanir.

Bóklegir flugkennarar (TKI)

Við leitum að fólki sem getur miðlað flókinni þekkingu á skýran, lifandi og áhugaverðan hátt í kennslustofunni.

  • Kröfur: Djúpstæð þekking á viðkomandi faggreinum (t.d. veðurfræði, flugleiðsögu, flugeðlisfræði, regluverki eða mannlegri getu).

  • Kostur: Reynsla af kennslu, kynningarmálum eða háskólagráða sem nýtist í starfi.

 

Verklegir flugkennarar (MCCI, TRI, SFI)

Við leitum að jákvæðum og faglegum einstaklingum sem hafa gaman af því að vinna með nemendum í krefjandi en skemmtilegu umhverfi.

  • Kröfur: Gild flugkennsluréttindi (MCCI, TRI eða SFI) eða 1500 klst reynsla í multi-pilot umhverfi, rík öryggisvitund og framúrskarandi samskiptafærni.

  • Kostur: Reynsla af flugkennslu er mikill kostur, sér í lagi MCC eða tegundaráritanakennslu, en við hvetjum einnig aðra áhugasama flugmenn með tilskylda reynslu til að sækja um.

 

Hvað einkennir okkar starfsfólk?

  • Metnaður til að veita framúrskarandi leiðsögn.

  • Þolinmæði og færni í að laga kennsluaðferðir að ólíkum nemendum.

  • Góð tungumálakunnátta, bæði á íslensku og ensku.

Við bjóðum

  • Spennandi og lifandi starfsumhverfi þar sem engir tveir dagar eru eins.

  • Frábæran liðsanda og frábæra aðstöðu.

  • Tækifæri til að móta næstu kynslóð flugmanna og bæta við þekkingu þeirra sem eru lengra komnir.

Hvernig á að sækja um?

Viltu taka flugið með okkur? Sendu okkur ferilskrá ásamt stuttu kynningarbréfi (á ensku) þar sem fram kemur hvort þú sért að sækja um sem verklegur eða bóklegur kennari (eða hvort tveggja).

 

Umsóknir sendist á info@flugskoliislands.is og merkjast „Umsókn: Flugkennari“.

 

Öllum umsóknum verður svarað og farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál.

 

Við hlökkum til að heyra frá þér!

bottom of page